Hvít blóðkorn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hvít blóðkorn eru sérhæfðar frumur í blóði sem sjá um að eyða sýklum, aðskotaefnum úr líkamanum eða líkamspörtum, svo sem æxlum. Auk þess stuðla sum þeirra að því að sár grói. Þau eru stærri en rauð blóðkorn og geta ólíkt þeim farið út úr æðakerfinu í aðra líkamsvefi þar sem þeirra er þurfi. Þær skiptast aðallega í þrjá flokka: kornfrumur, einkjörnunga og eitilfrumur. Hvítu blóðkornin myndast ekki endilega í beinmerg eins og rauðu blóðkornin. Þau geta myndast víðvegar um líkamann.