Skyggnigáfa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skyggnigáfa er hæfileiki sem á að gera fólki kleift að skynja með yfirnáttúrulegum hætti ýmislegt sem öðrum er hulið, og verður ekki skynjað með venjulegum skynfærum. Það sem skynjað er getur verið margs konar. Sumir eru sagðir „sjá“ álfa, drauga eða aðrar yfirnáttúrulegar verur. Aðrir eru sagðir sjá fyrir óorðna atburði eða skynja fortíð hluta með því að handfjatla þá.
Allmargt fólk telur sig hafa eða er sagt hafa skyggnigáfu, en margir hafa efasemdir um að hæfileikinn sé raunverulegur, og aldrei hefur verið sýnt fram á að um raunverulegan hæfileika sé að ræða, þótt all-umfangsmiklar rannsóknir hafi verið gerðar.
[breyta] Sjá einnig
- Berdreymi
- Miðilsgáfa
- Spádómsgáfa