Eðlismassi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eðlismassi, þéttni eða (efnis)þéttleiki er hlutfall massa og rúmmáls fyrir efni sem er samleitt í því magni sem til athugunar er. Eðlismassi efnis er háður ástandi þess, s.s. hita og þrýstingi. Þetta á einkum við efni í gasham. SI-mælieining er kílógramm á rúmmetra (kg/m3). Er eiginleiki hlutar eða efnis, frábrugðið eðlisþyngd, sem er háð þyngd þess.