Encyclopædia Britannica
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alfræðiorðabókin Britannica (enska: Encyclopædia Britannica ) er elsta alfræðiorðabókarútgáfan á ensku um almenn málefni. Greinar hennar eru almennt taldar áreiðanlegar, nákvæmar og vel skrifaðar.
[breyta] Saga
Upphaflega var alfræðiorðabókin gefin út í Edinborg af prentaranum Colin Macfarquhar og leturgrafaranum Andrew Bell. Fyrsta útgáfan var í þremur bindum sem komu út, eitt á ári, 1768 til 1771. Ritið seldist vel og þegar komið var að fjórðu útgáfunni árið 1809 voru bindin orðin tuttugu. Á áttunda áratug nítjándu aldar flutti útgáfan frá Edinborg til London og varð hluti af samsteypu dagblaðsins The Times. Eftir elleftu útgáfu Britannicu, árið 1911, flutti hún á ný, nú til Chicago, þar sem hún komst í eigu Sears verslanafyrirtækisins. Hún er enn staðsett í Chicago, en síðan 1996 hefur eigandinn verið svissneski milljarðamæringurinn Jacqui Safra sem á líka Merriam-Webster orðabókina.
[breyta] Samningur við Íslenska ríkið
Þann 20. apríl 1999 gerði Björn Bjarnason fyrir hönd Menntamálaráðuneytis Íslands samning við Encyclopedia Britannica International Ltd þess efnis að öll íslensk IP-net fengju aðgang að vefútgáfu alfræðiorðabókarinnar gegn ákveðnum skilyrðum, sem sett voru fram í samningnum. Gilti hann til 30. apríl 2000 og borgaði ráðuneytið 10,000 sterlingspund, eða rúmlega eina milljón íslenskra króna fyrir.
Þetta var í fyrsta skipti sem slíkur aðgangur hafði verið keyptur fyrir heilt land, en slíkir samningar eru oftast gerðir við einstaka skóla, þá oftast mennta- eða háskóla. Verðið sem einstaklingur þarf að borga fyrir ársaðgang að alfræðiorðabókinni á vefnum er 40 pund. Miðað við það fékk Menntamálaráðuneytið um 99,9 prósent afslátt ef borið er saman við að íbúar landsins hefðu allir keypt aðgang sjálfir.
[breyta] Tenglar
- Vefsíða Encyclopædia Britannica
- Útgáfa Britannica sem Ísland hefur fullan aðgang að
- Skönnuð útgáfa af Encyclopædia Britannica frá árinu 1911
- Hluti 1911 útgáfunnar hjá Project Gutenberg.
- Samingur Mennamálaráðuneytisins við Encyclopedia Britannica International Ltd
- Fréttatilkynningin „Aðgangur Íslendinga að alfræðiorðabókinni Encyclopædia Britannica“ frá Menntamálaráðuneytinu
- Tölur um aðsókn frá íslenskum IP-netum að Britannica