Framsókn (tímarit)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Framsókn var íslenskt tímarit helgað kvenréttindamálum sem kom út frá 8. janúar 1895 til desember 1901. Útgefendur og ritstjórar voru Sigríður Þorsteinsdóttir og Ingibjörg Skaftadóttir og kom blaðið út mánaðarlega á Seyðisfirði til 1899 þegar þær seldu það til Jarþrúðar Ólafsdóttur og Ólafíu Jóhannsdóttur sem gáfu það út í Reykjavík til 1901.