Hlaði (tölvunarfræði)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
|
|
Hlaði (einnig kallaður stafli) er mikið notuð gagnagrind. Það einkennist af því að nýjasta stakið á hlaðanum er það fyrsta sem fjarlægist. Líta má á hlaðann sem nokkurskonar rör sem er lokað að neðan, þar sem að til þess að ná neðsta stakinu úr þarf að fjarlægja öll stökin ofan af.
Aðgerðirnar á stafla eru tvær:
- Ýta (Push): bæta nýju staki við efst á hlaðann.
- Toga (Pop): taka efsta stakið ofan af hlaðanum.