Menntamálaráðuneyti Íslands
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Menntamálaráðuneytið er ráðuneyti sem lútir að menntun og fræðslu á Íslandi, og var stofnað formlega 1. júní 1947 þegar það var ákveðið að forsætis- og menntamálaráðuneytið skyldu framvegis starfa undir sama ráðuneytisstjóra. Þetta hélst óbreytt til 1. janúar 1970, en á þeim tíma var þeim skipt í tvö ráðuneyti.
Efnisyfirlit |
[breyta] Helstu málefni
Nokkur af helstu málefnum sem ráðuneytið fer með varða er:
- kennslu og skóla
- rannsóknar- og vísindastarfsemi
- listir og menningarstarf
- útvarp, sjónvarp; íþrótta- og æskulýðsstarfsemi
[breyta] Starfssemi
Ráðherra menntamálaráðuneytisins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fer með yfirstjórn ráðuneytisins og einnig ber hún ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Allar embættisfærslur starfsmanna eru gerðar í umboði ráðherra.
Ráðuneytisstjóri, Guðmundur Árnason, stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra samkvæmt erindisbréfi.
Ráðuneytið starfar sem ein heild og skiptist í þrjár skrifstofur og fjögur svið. Skrifstofurnar eru skrifstofa menningarmála, skrifstofa menntamála og skrifstofa vísinda. Hin fjögur svið eru fjármálasvið, lögfræðisvið, mats- og greiningarsvið og upplýsinga- og þjónustusvið. Ráðuneytisstjóri annast samræmingu á starfsemi skrifstofa og sviða. Ráðuneytisstjóri og skrifstofustjórar sjá um miðlun upplýsinga til ráðherra.
[breyta] Ytri krækjur
[breyta] Heimildir
- Skipulag. Skoðað 27. nóvember, 2006.