Vamm
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vamm var íslenskt tímarit sem kom út mánaðarlega. Það kom fyrst út í júní 2004 og útgáfu var hætt í maí 2005. Ritstjórn blaðsins skipuðu meðal annarra Halldóra Þorsteinsdottir, Sveinbjörn Pálsson og Björn Þór Björnsson.
Tímaritið fjallaði um lífsstíl, tónlist og menningu ungs fólks á Íslandi.
Blaðið náði aldrei almennilegri fótfestu á auglýsingamarkaði, náðarhöggið í rekstri blaðsins var þegar dægurmálaútvarp Rásar 2 tók fyrir forsíðuviðtal blaðsins við Andra Frey, útvarpsmann á X-inu, og hvatti auglýsendur til að endurskoða birtingar sínar í tímaritinu.