Ástand stofns
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ástand stofns hætta á útdauða |
Útrýming |
Válisti |
Í alvarlegri útrýmingarhættu |
Í nokkurri hættu |
Nærri því ógnað |
Tengt efni |
Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin |
Ástand stofns lífveru gefur vísbendingu um það hversu líklegt er að tegundin eigi eftir að lifa af í náinni framtíð á tilteknu svæði eða í heiminum öllum. Mörg atriði eru tekin til greina þegar ástand stofns er metinn; ekki aðeins hversu margir einstaklingar eru til, heldur líka aukning eða minnkun stofnsins á tilteknu tímabili, æxlunartíðni, þekktar ógnir, o.s.frv.
Þekktasti listinn yfir ástand stofna lífvera er Rauði listi IUCN, en til eru margir sérhæfðari listar, eins og CITES sem takmarkar milliríkjaverslun með tilteknar lífverur.