Það sem sanna átti
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Það sem sanna átti, skammastafað þ.s.s.á, er íslenskun á latnesku setningunni Quod erat demonstrandum (skammstafað QED), sem gjarnan er notuð í stærðfræði og skyldum vísindagreinum til þess að tákna að sönnun sé lokið og að niðurstaðan sé ótvíræð. Bókstafleg þýðing orðanna er „það sem var til sönnunar“.
Þetta er oft táknað með ferningi, ýmist fylltum eða holum, .