Þorkelshólshreppur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þorkelshólshreppur var hreppur í Vestur-Húnavatnssýslu, kenndur við bæinn Þorkelshól í Víðidal.
Hinn 7. júní 1998 sameinaðist hann hinum 6 hreppum sýslunnar: Staðarhreppi, Fremri-Torfustaðahreppi, Ytri-Torfustaðahreppi, Kirkjuhvammshreppi, Hvammstangahreppi og Þverárhreppi undir nafninu Húnaþing vestra.