Bæjarins beztu pylsur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bæjarins beztu pylsur er pylsusölustandur í miðbæ Reykjavíkur. Hann er einn alvinsælasti sölustaður pylsa í Reykjavík og myndast oft langar biðraðir við hann. Meðal annars er hann vinsæll meðal frægs fólks sem sækir borgina heim og meðal þeirra sem þar hafa borðað er fyrrverandi forseti Bandaríkjanna Bill Clinton og hljómsveitin Metallica. Bæjarins Bestu lenti á lista breska blaðsins The Guardian yfir bestu sölustanda í Evrópu og lenti í öðru sæti.