Díonýsíos Þrax
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Díonýsíos Þrax eða Díonýsíos Þrakverji (Διονύσιος ὁ Θρᾷξ) (170-90 f.Kr.) var forngrískur málfræðingur sem bjó og starfaði í Alexandríu í Egyptalandi og síðar á Ródos.
Fyrsta varðveitta ritið um gríska málfræði Málfræðin (Tékhnē grammatiké) er eignað honum. Ritið fjallar einkum um beygingarfræði en skortir umfjöllun um setningafræði. Díonýsíos skilgreinir málfræði í upphafi bókar sinnar sem „hagnýta þekkingu á almennri málnotkun skálda og rithöfunda“.
Ritið var þýtt yfir á armenísku og sýrlensku á 1. og 2. öld.
[breyta] Heimildir
- Greinin „Dionysius Thrax“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. febrúar 2007.
- Benedetto, V. Di, „At the Origins of Greek Grammar“, Glotta 68 (1990): 19-39.
- Lallot, J, La grammaire de Denys le Thrace (CNRS Editions, 1998).
- Robins, R.H. A Short History of Linguistics (Indiana University Press, 1967).