Eyrarbakki
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eyrarbakki er lítið sjávarþorp á suðurströnd Íslands. Það tilheyrir sveitarfélaginu Árborg og þar búa um 500 manns. Á Eyrarbakka var mikil verslun og sóttu bændur á Suðurlandi til Eyrarbakka á meðan á einokun danska kóngsins stóð. Eyrarbakki varð einn stærsti bær á Íslandi og var á þeim tíma mun stærri en t.d. Reykjavík og leit lengi út fyrir að Eyrarbakki yrði höfuðborgin.
9. janúar 1990 gekk mikill sjór inn á suðurströndina í kjölfar ofsaveðurs sem þá gekk yfir landið og urðu þorpin Eyrarbakki og Stokkseyri verst úti í þessum hamförum veðurofsans þegar ein dýpsta lægð sem mælst hefur á síðustu áratugum rann upp að suðurströndinni.