Finnur Magnússon
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Finnur Magnússon (einnig þekktur sem Finn Magnusen) (27. ágúst 1781 - 24. desember 1847) var íslenskur fornfræðingur og leyndarskjalavörður í Kaupmannahöfn og einn helsti rúnafræðingur á Norðurlöndum. Faðir Finns var Magnús Ólafsson lögmaður úr Svefneyjum og föðurbróðir Finns var Eggert Ólafsson náttúrufræðingur og skáld. Móðir Finns var Ragnheiður Finnsdóttir biskups. Finnur varð prófessor að nafnbót og forstöðumaður leyndarskjalasafnsins í Kaupmannahöfn. Hann var etatsráð en það er tignarheiti án embættis. Hann var í miklu áliti meðal samtíðarmanna sinna. Finnur var í miklu dálæti hjá konungi og má rekja það til þess að þegar Jörundur hundadagakonungur ríkti á Íslandi þá neitaði Finnur sem þá var embættismaður á Íslandi að svíkja konung og vinna fyrir Jörund.
Finnur rannsakaði það sem hann taldi rúnir í Runamo í Blekinge í Svíþjóð. Honum hugkvæmdist að lesa þær afturábak gegnum spegil og gat þannig lesið vísu. Hann skrifaði 750 blaðsíðna rit um rúnirnar í Runamo. Jarðvísindamenn telja að risturnar í Runamo séu jökulrákir.
Sögulega skáldsagan Ævitími skugganna (da.: Skyggers levetid) eftir danska rithöfundinn Gorm Rasmussen fjallar um Finn Magnússon.
Þegar Jón Sigurðsson kom til Kaupmannahafnar þá vann hann um tíma sem skrifari hjá Finni.
[breyta] Tenglar
- Landkönnuðurinn og leyndarskjalavörðurinn Lesbók Mbl. 20. júlí 1996
- Dårlig videnskab straffes med døden
- Finnur Magnusson Biografi
- Runamo 1: De mystiske tegn i Blekinge
- Runamo 2: De mystiske tegn i Blekinge
- Runamo 3: De mystiske tegn i Blekinge
- Runerne på Runamo
[breyta] Aðrar heimildir
- Andvari, rit Hins íslenska þjóðvinafélags (122. árg) Grein eftir Aðalgeir Kristjánsson um FinnMagnússon