Fornyrðislag
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Fornyrðislag er fornnorrænn bragarháttur, runninn frá forngermönskum brag og finnst á rúnaristum á Niðurlöndum allt frá 9. öld.
Hver braglína fornyrðislags hefur tvö ris en breytilegan fjölda áherslulausra atkvæða. Stuðlasetning tengir saman tvær og tvær línur en rím er ekkert. Línufjöldi var upphaflega breytilegur en varð síðan átta línur.
Fornyrðislag er bragarháttur Völuspár:
Hljóðs bið ég allar helgar kindir meiri og minni mögu Heimdallar. Viltu, að ég, Valföður, vel fyr telja forn spjöll fira, þau er fremst um man.
Fornyrðislag er líka bragarháttur frásagnarkvæða eddukvæða, auk vísana og kvæða í fornaldarsögum. Fornyrðislag var endurvakið á Íslandi á 18. og 19. öld fyrir áhrif rómantísku stefnunnar. Af fornyrðislagi þróaðist ýmis afbrigði, s.s. kviðuháttur sem hefur þrjú atkvæði í ójöfnu línunum en fjögur í þeim jöfnu (t.d. Sonatorrek Egils Skallagrímssonar).
[breyta] Einkenni
- þrjú atkvæði í stökum línum og 4 atkvæði í jöfnum línum (hið fæsta).
- ekkert rím.
- átta línur hver vísa.
- fjórir stuðlar ýmist ein eða tveir á móti höfuðstaf.
Mjög erum tregt, tungu að hræra eða loftvægi ljóðpundara; era nú vænlegt um Viðurs þýfi né hógdrægt úr hugar fylgsni.
Málaháttur sem hefur ekki færri en fimm atkvæði í línu (t.d. Atlamál):
Frétt hefir öld óvu, þá er endr of gerðu seggir samkundu sú var nýt fæstum, æxtu einmæli, yggr var þeim síðan ok it sama sonum Gjúka er voru sannráðnir.
Og runhenda sem er með endarím aabb eða aaaa (t.d. Höfuðlausn Egils Skallagrímssonar):
UNIQ1c9c90dd30aeb5f6-pre-000024AC-QINUSnið:Link UA