Haífa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Haífa (hebreska: חיפה) er hafnarborg í Ísrael sem liggur á norðurströnd landsins við Miðjarðarhaf, nálægt landamærum Líbanons. Íbúafjöldi er um 300.000. Bærinn hefur lengi verið þekktur sem dæmi um það að ólíkir trúarhópar geti búið saman í sátt og samlyndi.
Í borginni eru sérstök iðnaðarhverfi, eins og Matamgarðurinn, þar sem mörg ísraelsk og alþjóðleg hátæknifyrirtæki eru með rannsóknar- og þróunardeildir.
Í Haífa er Heimsmiðstöð Baá'í sem inniheldur meðal annars gröf Bábs á Karmelfjalli. Regla Karmelíta var stofnuð á fjallinu á miðöldum.
Höfnin í Haífa er stærsta farþegahöfn Ísrael og með stærstu útskipunarhöfnum landsins.