Hambrigði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Dramatísk persónuleikaröskunun(dramatic personality disorder)
Almenn röskun, hambrigði (Borderline)Fólk sem þjáist af þessu sýnir mikinn óstöðugleika, sem felur í sér miklar skapsveiflur, óstöðuga sjálfsímynd og hvatvísi. Þegar þessir eiginleikar sameinast verður það til þess að einstaklingurinn á í mjög óstöðugum samböndum. Þetta fólk sveiflast í skapinu frá kvíða, þunglyndi og bráðlyndis frá nokkrum klukkutímum til nokkurra daga. Tilfinningar þeirra virðast alltaf vera í stanslausum árekstrum við umheiminn og þau eru þá líklegri til að fá reiðisköst sem brýst stundum út í líkamlegri árásargirni og ofbeldi. En jafn oft beina þau reiðinni inn á við og skaða sig sjálf. Margir virðast truflaðir af djúpri tilfinningu af tómleika. Margir skaða sjálfan sig til að takast á við tómleikann innra með sér og það koma upp mörg tilfelli þar sem þetta fólk reynir að svipta sig lífi. Þetta fólk fer oft í stormasöm ástarsambönd með fólki sem það elskar ekki, það óvirðir sambandið og verður hamstola þegar kröfum þess er ekki mætt, en vilja þó ekki losa sig úr sambandinu og eru mjög háð því, lamað af ótta við að vera eitt. Stundum skera þau sig til að koma í veg fyrir að hinn aðilinn fari frá því.