Hjalti Jón Sveinsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hjalti Jón Sveinsson (fæddur 1953) er skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri. Hann var áður skólameistari Framhaldsskólans á Laugum. Hann brautskráðist sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1973. Hann lauk Cand. Mag.-prófi í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands 1986 og kennsluréttindanámi frá sama skóla 1994. Hann hefur stundað framhaldsnám í stjórnun og skólastarfi við Kennaraháskóla Íslands. Kennslu stundaði Hjalti Jón samhliða háskólanámi á árunum 1975 -1982. Þá starfaði hann við ritstjórn, ritstörf og blaðamennsku á árunum 1982 -1994, þar af 3 ár í Þýskalandi. Hann var skólameistari Framhaldsskólans á Laugum 1994 -1999 og hefur starfað sem skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri frá 1999.