Jóhannes Jósefsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jóhannes Jósefsson á Borg (28. júlí 1883 – 5. október 1968) var íslenskur glímukappi, fæddur á Oddeyri (Akureyri), sem ferðaðist um alla Evrópu og Bandaríkin og sýndi glímu eftir aldamótin 1900. Árið 1930 lagði hann allt sitt fé í að reisa Hótel Borg í Reykjavík og rak það næstu þrjátíu árin, eða þar til hann settist í helgan stein árið 1960. Eftir að hann reisti hótelið var hann jafnan nefndur Jóhannes á Borg.