Jeff Who?
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jeff Who? er íslensk rokkhljómsveit sem syngur á ensku. Fyrsta og eina plata hennar er Death Before Disco, sem kom út árið 2005, og þekktasta lagið Barfly.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
Forsögu hljómsveitarinnar má rekja til þess að Þorri ákvað að leigja sér æfingahúsnæði til að æfa sig á trommur. Fljótlega slógust Baddi og Ásgeir í hópinn og byrjuðu þeir að æfa saman. Elli, sem var í sama skóla og sama bekk og þeir, langaði að prófa nýja mixerinn sinn og mætti eitt kvöldið vopnaður mini-disk, mixernum, tölvu, hljóðnema og helling af sjálfstrausti. Eftir stuttan tíma sem framleiðandi, stjórnandi og umsjónarmaður þeirra slóst Elli í hópinn og leikur nú á bassa. Þorri, Ásgeir, Baddi og Elli spiluðu saman í einhvern tíma, aðallega samt til að nota æfingahúsnæðið sem samkomustað til að drekka bjór áður en þeir fóru út á lífið. Í partýi hitti Baddi Tobba sem var búinn að vera spila með nokkrum innanbæjar hljómsveitum og var þekktur fyrir mikla píanóhæfileika. Tobbi var búinn að vera í sama skóla og hinir fjórir og bjó í sama hverfi og Baddi, svo hinir vissu að Tobbi væri ágætis viðbót við hljómsveitina. Baddi bauð Tobba að koma og æfa með þeim og árið 2004 var hljómsveitin Jeff Who? stofnuð. Vorið 2005 byrjuðu þeir að taka upp fyrstu plötu sína, Death Before Disco, og í september sama ár kom platan út í samstarfi við Smekkleysu.
[breyta] Meðlimir
- Bjarni Lárus Hall (Baddi) - söngur
- Elís Pétursson (Elli) - bassi og bakrödd
- Þorbjörn Sigurðsson (Tobbi) - píanó, synths, gítar og bakrödd
- Þormóður Dagsson (Þorri) - trommur
- Ásgeir Valur Flosason (Ásgeir) - gítar
- Guðmundur Óskar Guðmundsson (Samfés) - hljómborð
[breyta] Plötur
Jeff Who? gaf út sína fyrstu hljómplötu í september árið 2005 í samstarfi við Smekkleysu. Platan bar nafnið Death Before Disco.
Lagalisti
- The Morning After You (2:52)
- The Golden Age (3:40)
- Stop Wasting My Time (3:49)
- Teaser (3:50)
- Bob Murray (3:41)
- Faces (3:21)
- Death Before Disco (3:22)
- Puppy Eyes/Success (3:58)
- Barfly (3:42)
- Bipolar Breakdown (5:46)