Kötlugos
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kötlugos er gos í megineldstöðinni Kötlu sem staðsett er í suðaustanverðum Mýrdalsjökli. Kötlugos hafa að meðaltali orðið tvisvar á öld, Kötlugos frá landnámi eru um það bil 20 talsins. Síðasta Kötlugos var árið 1918. Miklar líkur (yfir 20%) eru taldar á Kötlugosi innan tíu ára.
Á síðustu 10.000 árum hafa þessar þrjár gerðir eldgosa orðið í eldstöðvakerfi Kötlu:
- Basísk eldgos á sprungum undir jökli
- Súr eldgos sem sennilega hafa byrjað undir jökli
- Basísk flæðigos á sprungum utan Kötlu.
Flest gos Kötlu á sögulegum tíma hafa verið á vatnasvæði Kötlujökuls og valdið hlaupi niður á Mýrdalssand. Síðasta gos (1918) varð þar og mestar líkur eru á að næsta gos verði þar einnig. Gos Eyjafjallajökuls og Kötlugos hafa komið á svipuðum tíma og virðist eldvirkni í þessum eldfjöllum vera tengd.
[breyta] Fyrirboðar um væntanlegt gos
Frá árinu 1999 hefur verið hægt en stöðugt landris, aukin jarðskjálftavirkni og aukinn jarðhiti í Kötluöskjunni. Þetta eru taldar vísbendingar og langtímafyrirboðar um að að kvika sé að safnast fyrir undir Kötlu og Kötlugos sé í vændum. Þegar kvika fer að brjóta sér leið upp til yfirborðs og eldgos að hefjast, þá er líklegur fyrirboði þess að skammt sé í að gos hefjist áköf jarðskjálftahrina og stundum landsig. Talið er að fyrirvari frá því að jarðskjálftar hefjast og þar til gos hefst geti verið frá einni klukkustund til eins sólarhrings.
[breyta] Fyrri Kötlugos
Ritaðar lýsingar á Kötlugosum eru til allt frá árinu 1625. Vart hefur orðið við jarðskjálfta í sveitunum 2 til 9 klukkustundum áður en hlaup kemur fram á Mýrdalssand.
[breyta] Heimildir
- Katla. Skoðað 26. september, 2006.
- Katla austan megin. Skoðað 26. september, 2006.
- Katla vestan megin. Skoðað 26. september, 2006.
- Jarðskjálftar í Mýrdalsjökli og nágrenni. Skoðað 26. september, 2006.
- Katla. Skoðað 26. september, 2006.
- Meira um Kötlu. Skoðað 26. september, 2006.
- Yfirlit um hættu vegna eldgos og hlaupa frá vesturhluta Mýrdalsjökuls og Eyjafjallajökli (pdf-skjal). Skoðað 26. september, 2006.