Kalksvifþörungar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() |
|||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | |||||||||
|
|||||||||
|
Kalksvifþörungar (fræðiheiti: Coccolithophores) eru einfrumuþörungar eða plöntusvif af ættkvíslinni Haptophyla. Þeir eru minni en skoruþörungar og kísilþörungar. Þeir eru alsettir örsmáum og fíngerðum plötum úr kalki. Kalksvifþörungar eru sjávarlífverur og er mikil mergð þeirra í ljóstillífunarbelti hafsins. Heimkynni kalksvifþörunga er úthafið. Ein tegund þeirra Emiliania huxleyi er algeng á norðlægum slóðum og finnst í miklu magni utan landgrunnsins sunnan við Ísland og allt til Bretlands. Talið er að sú tegund eigi mikinn hlut í varanlegri bindingu kalks og þar með einnig koltvísýrings í hafinu. Stundum er svo mikið af þessum þörungi í hafinu að það litast mjólkurhvítt. Þessi þörungur getur myndað rokgjarnt brennisteinssamband sem talið er að geti valdið niðurbroti á ósoni í lofthjúpi jarðar.
Rannsóknir á steingervingum kalksvifþörunga veita upplýsingar um hitastig og seltustig sjávar á mismunandi tímum.
[breyta] Heimildir
- Greinin „Coccolithophore“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14. ágúst 2006.
- Hafrannsóknarstofnun - Plöntusvif. Skoðað 14. ágúst, 2006.