Keppnisíþrótt
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Keppnisíþróttir eru þær íþróttir sem stundaðar eru í keppni við aðra. Margar íþróttir eru yðkaðar bæði sem skemmtun eða heilsubót og sem keppnisíþrótt. Þegar íþróttir eru stundaðar í kappi verða þær gjarnan meira spennandi og skemmtilegri, ýmsir hafa þó gagnrýnt þær á þeim grundvelli að þær séu niðurbrjótandi fyrir meirihlutan sem tapar og það sé hægt að njóta íþrótta sem þeirrar heilsubótar sem þær eru þrátt fyrir að engin keppni sé með í spilinu. Keppnisíþróttir eru algengt afþreyingarefni jafnvel fyrir þá sem ekki stunda þær og í kringum það skapast oft sérstök menning (sjá fótboltabullur). Það er heldur ekki óalgengt að einhverskonar veðmál tengist áhorfinu, menn tippa til dæmis á fótboltaleiki eða veðja á veðhlaupahesta.