Kinza Clodumar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kinza Godfrey Clodumar (fæddur 8. febrúar 1945 í Boe-héraði) er nárúskur stjórnmálamaður og fyrrverandi forseti landsins. Hann var þingmaður til margra ára, fjármálaráðherra frá 2003 fram í október 2004 og loks forseti landsins frá 12. febrúar 1997 til 18. júní 1998 þegar honum var steypt af stóli.
Clodumar er innfæddur Nárúi og hefur mikinn áhuga á umhverfismálum. Hann hefur fengið stuðning frá mörgum nárúskum stjórnmálamönnum, þar á meðal Bernard Dowiyogo, René Harris og Ludwig Scotty. Hann hefur einnig sýnt þeim stuðning. Árið 2003 reyndi hann tvívegis að verða aftur forseti. Hann missti þingsæti sitt í október 2004.
Forsetar Nárú |
---|
Hammer DeRoburt | Bernard Dowiyogo | Lagumot Harris | Kennan Adeang | Kenos Aroi | Ruben Kun | Kinza Clodumar | René Harris | Derog Gioura | Ludwig Scotty |