Kirkja
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kirkja eða guðshús er samkomustaður kristinna manna fyrir trúarlegar athafnir, einnig er orðið kirkja haft um stofnunina sem slíka og þá oftast með ákveðnum greini: kirkjan, kirkjunnar menn.
Söfnuðir og kirkjudeildir eru einnig stundum nefnd kirkjur t.d. rómversk-kaþólska kirkjan og þjóðkirkjan.