Knattspyrnufélagið Þróttur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Knattspyrnufélagið Þróttur var stofnað 5. ágúst 1949 í herbragga við svonefnda Grímstaðavör við Ægissíðu. Stofnendur félagsins voru Halldór Sigurðsson kaupmaður, sem var fyrirmyndin að Tomma í bókum Einars Kárasonar um Djöflaeyjuna, og Eyjólfur Jónsson, síðar lögreglumaður og sundkappi.
Þrátt fyrir að vera í það fyrsta einungis knattspyrnufélag hafa Þróttarar keppt í öðrum greinumí gegnum tíðina, þó mest áhersla hafi verið lögð á knattspyrnuna síðustu ár. Félagið var starfrækt í vesturbæ Reykjavíkur til ársins 1969 þegar því var formlega úthlutað svæði við Sæviðarsund í póstnúmeri 104. Þar starfaði félagið til 1998 þegar því var formlega veitt svæði í Laugardalnum. Þar hefur félagið nú aðsetur. Formaður Þróttar er Kristinn Einarsson.
Efnisyfirlit |
[breyta] Knattspyrna
Meistaraflokkur karla hjá Þrótti á það vafasama met að ekkert lið hefur fallið jafn oft úr efstu deild og Þróttur, en félagið hefur fallið úr efstu deild 10 sinnum. Þróttur keppti fyrst á Íslandsmótinu í knattspyrnu 1953 og tapaði báðum leikjum sínum. Þróttur var meðal þeirra sex liða sem kepptu í 1. deild 1955 (fyrsta deildarkeppnin á Íslandi) og varð fyrsta liðið í íslenskri knattspyrnusögu til að falla úr henni. Í tvígang hefur liðið haldið sér uppi lengur en eitt ár, og í bæði skiptin urðu tímabilin þrjú; fyrst 1978-1980 og svo 1983-1985. Þróttur hefur einu sinni fallið í þriðju deild, 1989. Ásgeir Elíasson hefur þjálfað flest tímabil allra þjálfara meistaraflokks eða tíu (1981-1984 og 2000-2005). Þjálfarar síðustu árin hafa verið Magnús Jónatansson (1989-1991), Ólafur Jóhannesson (1992), Ágúst Hauksson (1993-1996), Willum Þór Þórsson 1997-1999, Ásgeir Elíasson 2000-2005 og nú síðast Atli Eðvaldsson sem tók við um mitt sumar 2005. Atli lét af störfum á haustmánuðum 2006. Þess má geta að eldri bróðir Atla, Jóhannes, þjálfaði Þrótt um tíma sumarið 1985; en var látinn taka pokann sinn. Á síðustu árum hefur Þróttur teflt fram kvennaliði.
Þátttaka meistaraflokks karla á Íslandsmóti
Íslandsmót (engin deildaskipting) 1953-1954
1. deild 1955
2. deild 1956-1958
1. deild 1959
2. deild 1960-1963
1. deild 1964
2. deild 1965
1. deild 1966
2. deild 1967-1975
1. deild 1976
2. deild 1977
1. deild 1978-1980
2. deild 1981-1982
1. deild 1983-1985
2. deild 1986-1988
3. deild 1989-1990
2. deild 1991-1997
Úrvalsdeild 1998
1. deild 1999-2002
Úrvalsdeild 2003
1. deild 2004
Úrvalsdeild 2005
1. deild 2006
Íslandsmeistaratitlar í öllum flokkum
5. flokkur A 1975
3. flokkur 1976
2. flokkur 1977
Eldri flokkur 1990
6. flokkur (Pollamót) 1993
1. flokkur 1993
1. flokkur 1994
Titlar meistaraflokks karla
2. deildarmeistari 1958
2. deildarmeistari 1963
2. deildarmeistari 1965
Reykjavíkurmeistari 1966
2. deildarmeistari 1975
2. deildarmeistari 1977
2. deildarmeistari 1982
Íslandsmótið innanhúss 1984
3. deildarmeistari 1990
1. deildarmeistari 1997
Íslandsmótið innanhúss 1997
Deildarbikar KSÍ (neðri) 2001
Reykjavíkurmeistarar 2002
Árangur meistaraflokks karla 1990-2005
C. Deild 1990 1. sæti Sigurður Hallvarðsson markahæstur með 17 mörk í 17 leikjum.
B. Deild 1991 6. sæti Sigurður Hallvarðsson markahæstur með 6 mörk í 17 leikjum.
B. Deild 1992 5. Sæti Sigfús Kárason markahæstur með 6 mörk í 9 leikjum.
B. Deild 1993 6. sæti Ingvar Ólason markahæstur með 10 mörk í 17 leikjum.
B. Deild 1994 4. Sæti Páll Einarsson markahæstur með 5 mörk í 18 leikjum.
B. Deild 1995 6. sæti Óskar Óskarsson markahæstur með 7 mörk í 11 leikjum.
B. Deild 1996 3. sæti Heiðar Helguson markahæstur með 9 mörk í 15 leikjum.
B. Deild 1997 1. Sæti Einar Örn Birgisson markahæstur með 10 mörk í 17 leikjum.
A. Deild 1998 9. sæti Tómas Ingi Tómasson markahæstur með 14 mörk í 18 leikjum.
B. Deild 1999 8. sæti Hreinn Hringsson markahæstur með 10 mörk í 18 leikjum.
B. Deild 2000 7. sæti Páll Einarsson markahæstur með 9 mörk í 18 leikjum.
B. Deild 2001 3. sæti Brynjar Sverrisson markahæstur með 9 mörk 17 leikjum.
B. Deild 2002 2. sæti Brynjar Sverrisson markahæstur með 11 mörk í 13 leikjum.
A. Deild 2003 9. sæti Björgólfur Takefusa markahæstur með 10 mörk í 17 leikjum.
B. Deild 2004 2. sæti Páll Einarsson markahæstur með 9 mörk í 18 leikjum.
A. Deild 2005 10. sæti Páll Einarsson markahæstur með 5 mörk í 18 leikjum.
B. Deild 2006 4. sæti Halldór Hilmisson markahæstur með 5 mörk.
Leikjahæstu leikmenn Þróttar í efstu deild
Jóhann Hreiðarsson 95
Páll Ólafsson 83
Daði Harðarsson 80
Ársæll Kristjánsson 72
Þorvaldur Í Þorvaldsson 72
Markahæstu leikmenn Þróttar í efstu deild
Páll Ólafsson 29
Tómas Ingi Tómasson 14
Björgólfur Takefusa 10
Sören Hermansen 10
Jóhann Hreiðarsson 10
Leikjahæstu leikmenn Þróttar í öllum mótum
Páll Einarsson 362
Daði Harðarsson 303
Guðmundur Erlingsson 263
Sigurður Hallvarðsson 246
Gunnar I. Ingvarsson 238
[breyta] Handknattleikur
Strax við stofnun bar á áhuga á handknattleiksdeild innan félagsins, bæði meðal karla og kvenna. Vísir að henni var stofnaður 1951 og voru lið félagsins skráð til keppni strax um það leyti. Árið 1972 varð Óli Kr. Sigurðsson formaður deildarinnar og næstu árin hófst gullöld Þróttar í handboltanum. Meistaraflokkur liðsins komst í efstu deild 1980 og varð bikarmeistari í apríl 1981. Árið eftir komst liðið svo í undanúrslit Evrópubikarkeppninarinnar, en beið að lokum lægri hlut fyrir Dukla frá Prag. En Adam var ekki lengi í paradís því næstu ár lá leiðin niður við með starf meistaraflokks, liðið féll í aðra deild vorið 1986. Á þessum tíma voru helstu burðarásar liðsins farnir, s.s. Sigurður Sveinsson og Páll Ólafsson; sem báðir áttu eftir að gera það gott í atvinnumennskunni næstu ár. Um haustið 1986 var staðan orðið svo slæm að ákveðið var að senda ekki lið í meistaraflokki til leiks. Flokkurinn var síðar endurvakinn, en dofnaði út af aftur og árið 1990 lagðist deildin endanlega út af. Nú á síðustu árum hefur Þróttur sent sameiginlegt lið með Armanni á Íslandsmótið í handknattleik, en árangurinn hefur staðið á sér.
[breyta] Blak
Þróttur sendi fyrst lið til keppni í blaki, kvenna og karla, 1974. Síðan þá hefur liðið skipað sér í fremstu röð blakliða landsins. Karlaliðið hefur orðið Íslandsmeistari 1977, 1981, 1982, 1983, 1984, 1985, 1986, 1987, 1990, 1996, 1997 og 1999. Kvennaliðið varð íslandsmeistari 1983 og svo aftur 2004, 2005 og 2006. Kvennalið Þróttar hefur orðið bikarmeistari þrisvar 2004, 2005 og nú síðast 2006.
[breyta] Tennis
Tennisdeild Þróttar var stofnuð 1990.
[breyta] Tenglar
[breyta] Heimild
Jón Birgir Pétursson: Lifi Þróttur. Knattspyrnufélagið Þróttur. 50 ára saga öflugs knattspyrnufélags. (Reykjavík 1999).