Kvöldþátturinn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kvöldþátturinn var sjónvarpsþáttur, sýndur á sjónvarpsstöðinni Sirkus. Umsjónarmaður þáttarins var Guðmundur Steingrímsson. Hann var á dagskrá alla virka daga klukkan 10 á kvöldin, en á föstudögum var endursýnt það besta úr þáttum vikunnar.
Þátturinn var að vissu marki byggður á kvöldþáttum sem vinsælir eru í ýmsum löndum svo sem The Tonight Show og The Late Show, en stærsta fyrirmyndin var líklega þátturinn The Daily Show með þáttastjórnandanum Jon Stewart sem gengur út á pólitískar háðsádeilur með gagnrýnum undirtón.