Lúkíanos
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lúkíanos frá Samosata (forngrísku Λουκιανὸς ὁ Σαμοσατεύς, um 120 — eftir 180) var sýrlenskur-rómverskur mælskumaður, rithöfundur og höfundur satíra, sem ritaði á forngrísku og var rómaður fyrir fágaan stíl sinn, hugmyndaflug sitt og kímnigáfu sína.
Hann fæddist í borginni Samosata í fyrrum konungdæminu Kommagenu (í dag í austurhluta Tyrklands), sem var þá undir yfirráðum Rómaveldis og var sameinað skattlandinu Sýrlandi. Hann vísar til sjálfs sín sem „Sýrlendings“. Að öllum líkindum lést hann í Aþenu seint á 2. öld
Lúkíanosi eru eignuð rúmlega 80 ritverk en ósennilegt þykir að þau séu öll ósvikin. Í mörgum verka sinna gerir Lúkíanos óspart grín að bæði grískri goðafræði og {{Grísk heimspeki|grískri heimspeki]]. Ekkert er vitað um heimspekileg viðhorf hans sjálfs en hann hefur bæði verið talinn hafa aðhyllst aristótelisma og epikúrisma.