Lafferkúrfan
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Laffer kúrfan var kynnt til sögunnar af hagfræðingum Arthur Laffer. Laffer kúrfan er notuð til að skýra út hvernig teygni á milli skatttekna og skattprósenta er. Laffer kúrfan gengur út á að við ákveðna skattheimtu næst hámark. Við þá skattprósentu skilar hækkun á prósentuhlutfallinu ekki í ríkissjóð, heldur munu skatttekjur minnka.
Skv. kenningu Laffers mun 0% skattheimta og 100% skattheimta skila því sama til ríkissjóðs eða 0 krónum. Það gefur auga leið af hverju 0% skattheimta gefur 0 kr í ríkissjóð. Ástæða þess að 100% skattheimta gæfi líka 0% er sú að slíkt myndi fæla fólk frá því að afla sér tekna, þar sem hvort eð er öll innkoma færi í skatt.
Þetta er einmitt útgangspunktur Arhur Laffer, að almenningur þolir skattheimtu upp að vissu marki. Ef skattheimta verður of mikil dregur það úr vilja almennings til að afla sér tekna, þar sem of lítill hluti (að þeirra mati) rennur beint í eigið veski.
Nánari upplýsingar á ensku. Leit á Google [1] Grein eftir Arthur B. Laffer [2]