Mark (knattspyrna)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mark í knattspyrnu getur annars vegar verið leikmunur eða atburður.
Takmarkið í knattspyrnu er að ekki sé skorað í eigið mark heldur í mark andstæðingsins.
[breyta] Leikmunur
Mark er leikmunur gerður úr tveimur lóðréttum stöngum sem tengdar eru saman efst með láréttri þverslá. Milli neðri enda stanganna er mörkuð lína sem nefnist marklína.
Við þessar stengur eru iðulega tengd net til að varna því að boltinn fari of langt í burtu lendi hann í markinu.
[breyta] Atburður
Þegar knötturinn (boltinn) fer allur yfir marklínu, milli markstangar og undir markslá, svo fremi sem enginn hafi gerst brotlegur við knattspyrnulögin áður, er talað um að mark hafi verið skorað.