Merkurhraun
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Merkurhraun kallast hraunspilda á mörkum Flóa og Skeiða. Merkurhraun er hluti af Þjórsárhrauni, sem rann fyrir um 6.000 árum síðan. Jarðvegur á þessu svæði er þunnur, svo hraunstrýtur standa á mörgum stöðum upp úr mosaþembunum. Nafn sitt dregur hraunið af bænum Mörk sem var á þessu svæði, samkvæmt Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín.