Náttúruminjaskrá
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Náttúruminjaskrá er listi yfir öll friðlýst svæði á Íslandi og mörg önnur merkileg svæði sem hafa ekki enn verið friðlýst. Hún er birt í Stjórnartíðindum og staðfest af ráðherra. Náttúruverndarráð hefur einnig gefið skrána út í sérriti til að kynna friðlýstu svæðin, en ekki síður þau sem áhugi er á að verði friðlýst svo að fólk geti stuðlað að verndun þeirra.