Narsarsuaq
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Narsarsuaq (sem hefur verið stafað á ýmsan hátt, t.d. Narssarssuaq) er bær í Suður-Grænlandi. Orðið er grænlenska og þýðir „stóra sléttan“. Hér var ein helsta þungamiðja byggðar í Eystribyggð Grænlendinga hinna fornu, enda Brattahlíð rétt hjá, hinum megin fjarðarins.
Árið 1941 byggði Bandaríkjaher flugstöð sem kölluð var Bluie West One, og var hún mikilvægur hlekkur í flutningum frá Ameríku til Evrópu í seinni heimstyrjöldinni. Samkomulag varð milli Danmerkur og Bandaríkjanna 1951 um sameiginlegan rekstur. Það var haldið áfram að stækka flugstöðina þangað til Thule-flugstöðin var byggð á Norður-Grænlandi en hún var mun stærri og fullkomnari. Flugstöðin í Narsarsuaq var lögð niður 1958 en opnuð að nýju 1959 en þá einungis sem almenningsflugvöllur. Air Greenland flýgur daglega áætlunarflug á milli Kaupmannahafnar og Narsarsuaq og einnig innanlands á Grænlandi. Þar að auki flýgur Flugfélag Íslands á sumrin til Narsarsuaq frá Reykjavík.