Neva
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hnit: 59°57′ N 30°20′ A
Neva er á í Norðvestur-Rússlandi. Áin er stutt, aðeins 74 kílómetrar á lengd. Hún er samt mikilvæg fyrir skipasamgöngur í Rússlandi, því að hún rennur úr Ladogavatni og tæmist í Finnska flóa, sem gengur inn úr Eystrasalti. Skipaskurðir tengja hana við Volgu og Hvítahafið. Við árósana er St. Pétursborg (fyrrum Leningrad).