Rotþróin
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rotþróin er pönkhljómsveit frá Húsavík sem starfað hefur með mislöngum hléum frá því 1987. Stofnendur Rotþróarinnar voru þeir Eggert Hilmarsson, Borgar Þór Heimisson og Haraldur Ringsted. Árið 1997 flutti Borgar Þór bassaleikari hljómsveitarinnar búferlum til Danmerkur og tveimur árum seinna var hljómsveitin endurvakin með Vilhjálm Pálsson á bassa. Þannig skipuð hefur hljómsveitin starfað með hléum til í dag. Rotþróin gaf út meistaraverkið Haltu kjafti, éttu skít, boraðu gat á Reykjavík á kassettu árið 1991.
Efnisyfirlit |
[breyta] Meðlimir
- Eggert Hilmarsson, gítar og söngur
- Haraldur Ringsted, trommur
- Borgar Þór Heimisson, bassi og söngur (1987-1997)
- Vilhjálmur Pálsson, bassi (1999 - )
[breyta] Útgefin verk
[breyta] Plötur og kassettur
- Haltu kjafti, éttu skít, boraðu gat á Reykjavík (Erðanúmúsík 1991) kassetta
- Rotþróin (Eigin útg. 2000) geisladiskur
[breyta] Safnplötur
- Snarl III (Erðanúmúsík 1991) safnkassetta
- Núll & nix (Smekkleysa 1993) safndiskur