Rotvera
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rotvera er lífvera sem fær næringu úr dauðu lífrænu efni, venjulega rotnandi plöntu- eða dýraleifum, með því að taka upp uppleysanleg efnasambönd. Þar sem rotverur geta ekki séð sér fyrir næringu sjálfar eru þær álitnar ein gerð af ófrumbjarga lífverum. Rotverur eru margir sveppir (aðrir en samlífisverur), gerlar og frumdýr.