Sómi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sómi er samlokufyrirtæki sem framleiðir allskonar samlokur, hamborgara, langlokur, pasta, baquette og fleiri tilbúna rétti. Hjá fyrirtækinu starfa um 50 starfsmenn. Vörur Sóma eru fáanlegar um allt land í öllum helstu bensínstöðvum og matvöruverslunum.
Sómi var stofnað árið 1978 af Bjarna Sveinssyni. Fyrst um sinn var fyrirtækið til húsa í Kópavogi en síðar flutti fyrirtækið í Garðabæinn þar sem það er til húsa núna. Árið 1993 keyptu tveir aðrir hlut í fyrirtækinu, Arnþór Pálsson og Alfreð Hjaltalín. Árið 2003 seldi Bjarni Sveinsson sinn hluta í fyrirtækinu og hinir hluthafanir keyptu hans hlut. Vorið 2006 keypti Sómi næststærsta samlokufyrirtæki landsins Júmbó. Nú er Sómi að stækka við sitt núverandi húsnæði í Garðabænum.