Slóvakíska
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Slóvakíska (slóvakíska: slovenčina) er indó-evrópskt tungumál af ætt vestur-slavneskra tungumála. Hún er náskyld tékknesku og pólsku.
Slóvakíska er opinbert tungumál Slóvakíu en auk þess tala hana minnihlutahópar í Bandaríkjunum, Tékklandi, Ungverjalandi og fleiri löndum.
Slóvakíska er nokkuð flókið tungumál og hefur flókna málfræði.
[breyta] Ritháttur
Slóvakíska er rituð með latneska stafrófinu, en auk þess eru nokkrir sérstakir stafir.
Slóvakíska stafrófið í heild sinni:
a á ä b c č d ď dz dž e é f g h ch i í j k l ĺ ľ m n ň o ó ô p q r ŕ s š t ť u ú v w x y ý z ž.
Athugið að farið er með "dz", "dž" og "ch" sem einstaka stafi.