Slytherin
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Slytherin er ein af hinum fjórum heimavistum í skólanum Hogwarts, sem segir frá í bókunum um Harry Potter. Galdramaðurinn Salazar Slytherin sem er einn af fjórum stofnendum skólans stofnaði þessa heimavist. Slanga á grænum og gylltum fleti er tákn vistarinnar sem er stjórnað af Severus Snape. Blóðugi baróninn er draugurinn sem fylgir heimavistinni og inngangurinn er hreinn og sléttur steinveggur sem þar af leiðandi er mjög erfitt að finna. Það sem einkennir nemendur í Slytherin er mikill metnaður, svo mikill að þráin eftir völdum hefur leitt marga þeirra til að ganga til liðs við Voldemort.