Sneriltromma
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sneriltromma er nokkuð hefðbundin tromma, nema hún hefur snerla. Tromman hefur skinn báðum megin, en á botnskinninu liggja vírar, sem kallaðir eru snerlar, sem titra þegar slegið er á trommuna. Flestir kannast við þessa trommu úr skrúðgöngum og marseringum.