Sog (á)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sogið er 19 kílómetra löng lindá sem fellur úr Þingvallavatni. Það er vatnsmesta lindá landsins með meðalrennsli upp á 110 m³/s. Mikil silungagengd er í ánni, en hún minnkaði þó til muna þegar Ljósafossstöð, fyrsta af þremur virkjunum var byggð. Hinar virkjanirnar eru Steingrímsstöð og Írafossstöð. Sogið mætir Hvítá og myndar Ölfusá við Öndverðarnes.
Í Soginu eru tvö stöðuvötn, Álftavatn sem er grunnt og Úlfljótsvatn sem er fyrir neðan Dráttarhlíð sem skilur það frá Þingvallavatni. Álftavatn er eina almennilega vaðið á ánni þangað til hún var brúuð við Alviðru árið 1905.
[breyta] Heimild
- Landsvirkjun - Sogsstöðvar. Skoðað 30. nóvember, 2005.