Spaugstofan
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Spaugstofan er grín-sjónvarpsþáttur sem hefur verið í gangi í Sjónvarpinu með hléum síðan 1989 þegar hún var kölluð 89 af stöðinni. Þátturinn er á dagskrá á laugardagskvöldum og gengur yfirleitt út á það að sýna atburði liðinnar viku í spaugilegu ljósi. Spaugstofuna skipa í dag þeir Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Randver Þorláksson en þessi skipan hefur verið óbreytt megnið af þeim tíma er Spaugstofan hefur starfað. Þeir í spaugstofunni gera mikið grín af stjórnmálum og frægum mönnum á Íslandi.
Spaugstofan hóf göngu sína 21. janúar 1989 sem 89 af stöðinni. Árið eftir hét hún 90 af stöðinni og enn síðar Enn ein stöðin.