Stórfurstadæmið Litháen
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stórfurstadæmið Litháen (litháíska: Lietuvos Didžioji Kunigaikštystė, hvítrússneska: Вялі́кае Кня́ства Літо́ўскае (ВКЛ), úkraínska: Велике Князівство Литовське (ВКЛ), pólska: Wielkie Księstwo Litewskie) var ríki við Eystrasaltið frá 12. öld fram á 18. öld. Það var stofnað af litháum á fyrri hluta 12. aldar til að bregðast við ágangi sverðbræðra og náði brátt yfir það sem í dag heitir Litháen auk stórs hluta þess sem nú er Hvíta-Rússland. 1386 gekk stórfurstadæmið í konungssamband við Pólland (Pólsk-litháíska ríkið), einkum vegna uppgangs Stórfurstadæmisins Moskvu. 1569 varð stórfurstadæmið sjálfstæður hluti af Pólsk-litháíska samveldinu þar til því var skipt upp 1795.