Staðarnet
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Staðarnet er tölvur sem eru tengdar saman um skamman veg, til dæmis heimili, skrifstofur eða skrifstofubyggingar. Uppbygging netsins er oftast þannig að það er einn netþjónn sem sér um ýmsar þjónustur til dæmis skráarhýsingu, prentun og vistfangaúthlutun. Tölvan sem notandi notar biður um þjónustu frá netþjóni. Netþjóninn getur afgreitt margar beiðnir í einu og er venjan að netþjónar séu með mismunandi aðgangsstýringar sem hafa verið úthlutaðar til notenda, þar sem notandi þarf að vera með viðkomandi réttindi til að sækja þær þjónustur sem hann óskar frá netþjóninum, t.d. sækja skrá í skjalasafn. Flest staðarnet í dag eru byggð upp á IEEE 802.11 [Wi-Fi] ([Þráðlaust staðarnet]) eða IEEE 802.3 staðlinum sem keyrir á 10, 100 eða 1000 Mbit/s. Tölvu RJ45 snúrur eru í flestum tilvikum notaðar til að tengja tækin saman í þeim staðli.
Staðarnet innhalda í flestum tilvikum fáeina deila (e. Network switch) sem eru gjarnan tengdir saman á einn beini (e. Router) eða módem (t.d. DSL).
Þegar tvö staðarnet eru tengd saman í gegnum beini þá er tengingin þar á milli í kallað víðnet (e. WAN) Ólíkt víðneti þá eru það helstu einkenni staðarnets að þar er gagnahraði mun meiri en á víðneti.
Efnisyfirlit |
[breyta] Dæmi um algengustu IEEE 802.3 staðla sem eru notaðir í dag
Samskiptastaðall | Útgáfudagur | Stutt lýsing |
---|---|---|
802.3x | 1997 | Heil tvíátta og flæðis stjórn (e. Full Duplex and flow control); Kom einnig með DIX römmun (e. Framing), þannig að ekki er lengur þörf á DIX/802.3 skiptingu. |
802.3y | 1998 | 100BASE-T2 100 Mbit/s (12.5 MB/s) með lágmarks gæða RJ45 snúrum |
802.3z | 1998 | 1000BASE-X Gbit/s staðarnet með ljósleiðara fyrir 1 Gbit/s (125 MB/s) |
[breyta] Dæmi um algengustu IEEE 802.11 staðla sem eru notaðir í dag
Samskiptastaðall | Útgáfudagur | Tíðni | Gagnahraði (Venjul.) | Gagnahraði (Hámark) | Drægni (Innanhúss) | Drægni (Utanhúss) |
---|---|---|---|---|---|---|
Legacy | 1997 | 2.4-2.5 GHz | 1 Mbit/s | 2 Mbit/s | ? | ? |
802.11a | 1999 | 5.15-5.35/5.47-5.725/5.725-5.875 GHz | 25 Mbit/s | 54 Mbit/s | ~25 metrar | ~75 metrar |
802.11b | 1999 | 2.4-2.5 GHz | 6.5 Mbit/s | 11 Mbit/s | ~35 metrar | ~100 metrar |
802.11g | 2003 | 2.4-2.5 GHz | 25 Mbit/s | 54 Mbit/s | ~25 metrar | ~75 metrar |
802.11n | 2007
(ósamþykkt) |
2.4 GHz or 5 GHz tíðni | 200 Mbit/s | 540 Mbit/s | ~50 metrar | ~125 metrar |
[breyta] Staðarnet á heimilum
Við fjölgun tölva og tækja á nútíma heimilum þá hefur staðarnet verið notað til að tengja tækin saman. Mikið af þessum heimilum í dag eru að nota þráðlaust staðarnet með 802.11 g/b staðlinum sem sendir gögn sem langar örbylgjur á 2.4 Ghz tíðninni. IEEE 802.3 staðallinn er einnig notaður á mörgum heimilum.
[breyta] Saga
Í þá daga fyrir einkatölvuna, þá voru staðarnet oft bara með eina aðalvél. Þar gátu notendur fengið aðgang að henni í gegnum útstöðvar með litlum gagnahraða. Fyrsta staðarnetið var búið til á seinni hluta sjöunda áratugs síðustu aldar og var notað til þess að búa til háhraða tengingu milli tveggja tölva á einum stað. Á þessum tíma voru "Ethernet" og ARCNET vinsælust.
Með tilkomu stýrikerfa eins og DOS þá byrjuðu staðarnetin að stækka og byrjuðu á u.þ.b. 12 tölvum á staðarneti og allt upp í hundruði. Í upphafi var staðarnetið notað til þess að deila gagnaplássi og prenturum sem á þessum tíma var dýrkeypt.
[breyta] Heimildir
- Greinin „Local area network“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. mars 2007.
- Greinin „IEEE 802.11“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. mars 2007.
- Greinin „IEEE 802.3“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. mars 2007.