Strengir (tölvunarfræði)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Strengir eru ómissandi hluti forritunarmála þar sem unnið er með texta. Strengir bæði í forritunarmálum og [[stærðfræði}} eru notaðir til þess að halda utan um raðir tákna (symbol) úr fyrirfram ákveðnum mengjum. Þessi mengi eru endanleg og kallast stafróf (alphabet). Stafrófin geta verið mismunandi milli forritunarmála en oftast er um að ræða sammengi tölustafa, bókstafa og tákna. Strengir eru óbreytanlegir en forritunarmálin bjóða gjarnan uppá leið til að meðhöndla strengina á ýmsa vegu (t.d. StringBuffer og/eða substring í Java).
[breyta] Dæmi um gilda strengi í JAVA
- "123456"
- "hallo"
- "hallo123"
- "Mr. Jones"
- "10.000$ for 100%"
[breyta] Dæmi úr JAVA kóða
Nýr strengur búinn til:
String str = "abc";
Má líka gera það svona:
char data[] = {'a', 'b', 'c'}; String str = new String(data);
Dæmi um hvernig má meðhöndla streng:
System.out.println("abc"); String cde = "cde"; System.out.println("abc" + cde); String c = "abc".substring(2,3); String d = cde.substring(1, 2);