The Dyers
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
The Dyers er hljómsveit sem stofnuð var í Reykjavík árið 2004. Stofnendur hennar voru Kjartan Þórsson (gítar), Helgi Reynir Jónsson (gítar/söngur) og Guðmundur Einarsson (bassi). Samvinnan gekk vel vegna þess að allir voru þeir sammála um tónlistastefnuna sem hljómsveitin tók. Þá fór hljómsveitin af stað með góðu lofi svo þeir ákváðu að taka þátt í tónlistarkeppni fyrir íslenskar „bílskúrshljómsveitir" sem kallast Músíktilraunir. Þá gengu til liðs við þá Hrafnkell Örn Guðjónsson (trommur) og Eyjólfur Guðmundsson (hljómborð/bakraddir). Þessi unga hljómsveit lenti í þriðja sæti í keppninni (og fékk eina tilnefningu fyrir hljómborðsleik) og hefur komið víða að síðan og er stefnt að því að gefa út smáskífu eins fljótt og hægt er en hljómsveitin er í pásu vegna fjarveru Kjartans Þórssonar og Guðmundar Einarssonar.