Vænir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vænir (sænska: Vänern) er stærsta stöðuvatn í Suður-Svíþjóð, hvort sem litið er til flatarmáls (5648 km2) eða vatnsmagns (153 km3). Vænir er í 44 metra hæð yfir sjávarmáli og meðaldýpi þess er að meðaltali 27 metrar, en mesta dýpi mælist 106 metrar. Stærsta eyja í Væni er Þórseyja (Torsö) og næst stærst er Kállandseyja (Kållandsö), en annars má finna þar yfir 22.000 litlar eyjar.
Vænir er þriðja stærsta stöðuvatn Evrópu á eftir Ladogavatni og Onegavatni.