Valur Snær Gunnarsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Valur Snær Gunnarsson er fyrrum söngvari rokkhljómsveitarinnar Ríkið. Árið 2003 gaf Ríkið út fyrstu og einu plötu sína Seljum allt, með textum eftir Val. Áður hafði Valur gefið út sólóplötu, Reykjavík er köld, þar sem hann syngur lög eftir Leonard Cohen í eigin þýðingu.
Valur er þekktur fyrir óvenjulega sviðsframkomu þar sem hann leitar sér fyrirmynda í pönkinu og meðal óheflaðra rokkara. Þegar Valur kom fram ásamt Ríkinu, sem flutti pólitískt rokk, var hann jafnan klæddur hermannajakka, nokkrum númerum of litlum.
Auk þess að rembast í rokkinu hefur Valur fengist við skriftir og blaðamennsku. Hann var ritstjóri Reykjavík Grapevine um árabil, en það komst í heimsfréttir þegar því var neitað um lán á íslenskum þjóðbúningi á þeim forsendum að blökkukona ætti að klæðast honum.