Wallace Broecker
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dr. Wallace Broecker (fæddur 29. nóvember 1931 í Chicago, Illinois í Bandaríkjunum) er bandarískur jarðefnafræðingur og einn fremsti vísindamaður heims í túlkun á líffræðilegum, efnafræðilegum og eðlisfræðilegum hringrásarkerfum Jarðar.
Wallace hóf rannsóknir sínar árið 1950 með því að þróa tækni til að mæla geislakolsinnihald sjávar ásamt aldri og uppsöfnunarhraða djúpsjávar- og stöðuvatnasets. Gögnin notaði hann til að rekja mynstur hringrásarkerfa sjávar með tíma. Hann var einn úr hópi vísindamanna sem stundaði geislakolsmælingar á skeljum úr seti af sjávarbotni og þannig sitt af mörkum til þeirrar uppgötvunar, að síðasta jökulskeið hafi endað fyrir um 11.000 þúsund árum.